
Lúðrasveitar tónleikar á Rás 2
Það er ekki oft sem lúðrasveitir fá stóran sess í útsendingum íslenska útvarpsstöðva, þó Rás 1 megi eiga það að oft heyrist blástur lúðrasveita þar.
Á Rás 2 í gærkvöldi voru þó fluttir tónleikar grænklæddu vina okkar í Lúðrasveit verkalýðsins ásamt 200.000 Naglbítum. Þetta eru frábærir tónleikar og alveg þess virði að hlusta á.
Upptakan er aðgengileg til 19. desember. Njótið vel.
http://www.ruv.is/spila/ras-2/konsert/20180920